Tónleikahald hefst á Græna hattinum

Hvanndalsbræður verða með tónleika alla vikuna á Græna hattinum.
Hvanndalsbræður verða með tónleika alla vikuna á Græna hattinum.

Yfirvöld hafa gefið grænt ljós á samkomur fyrir allt að 200 manns frá og með deginum í dag, 25. maí og mun hljómsveitin Hvanndalsbræður í því tilefni að slá upp tónleikum í heila viku á Græna hattinum. Sveitin mun spila öll kvöld vikunnar frá mánudagskvöldinu 25. maí til sunnudagskvöldsins 31. maí þannig að allir ættu að finna kvöld við hæfi.

„Við ætlum öll að fara varlega og taka tillit til hvors annars og þeirra reglna sem settar hafa verið. Hvanndalsbræður eru í þann mund að hefja upptökur á nýrri plötu og munu nokkur þeirra nýju laga fljóta með gömlum góðum ásamt almennu sprelli,“ segir um tónleikana.

Mjög takmarkað magn miða verður í boði á öll kvöldin til gæta sem mestrar varúðar og tryggja fólki sitt pláss. Tónleikar hefjast kl 21.00 öll kvöldin og opnar húsið kl.20.00

 


Athugasemdir

Nýjast