Tómas Már Sigurðsson, forstjóri Alcoa Fjarðaáls, mun taka við sem forstjóri Alcoa í Evrópu með aðsetur í Genf þann 1. janúar næstkomandi. Tómas mun jafnframt hafa með höndum yfirstjórn álframleiðslusviðs (Global Primary Products) Alcoa í álfunni. Starfsfólki Fjarðaáls, um 480 manns, var tilkynnt um breytinguna í dag, þriðjudag.
Tómas Már tekur við stöðunni af Marcosi Ramos sem var nýlega ráðinn forstjóri álframleiðslusviðs (GPP) Alcoa í löndum Suður Ameríku og í Karíbahafi. Tómas mun bera ábyrgð á samræmingu aðgerða allra starfsstöðva Alcoa í Evrópu, sem eru um fimmtíu talsins. Sem forstjóri álframleiðslusviðs (GPP) í Evrópu mun Tómas jafnframt bera ábyrgð á rekstri álvera Alcoa á Íslandi, Ítalíu, Spáni og í Noregi, auk súrálsverksmiðju Alcoa á Spáni. Tilkynnt verður síðar hver taki við starfi forstjóra Fjarðaáls við Reyðarfjörð.