21. janúar, 2011 - 10:02
Fréttir
Enn hefur ekkert frést af tölvunni sem stolið var frá Aflinu, samtökum gegn heimilis- og kynferðisofbeldi á Norðurlandi. Brotist var inn í
húsnæði Aflsins á Akureyri á milli jóla og nýárs. Í tölvunni eru gögn sem gagnast samtökunum eingöngu og
þrátt fyrir auglýsingar um fundarlaun og velvilja hjá samborgurum hefur tölvan ekki komið í leitirnar.
Starfsmenn Tölvulistans á Akureyri heyrðu af raunum Aflskvenna og brugðust svo vel við að gefa samtökunum nýja borðtölvu. "Við erum við
alveg óskaplega þakklátar fyrir það. Þó svo að við séum ekki að geyma nein mikilvæg gögn í tölvu (önnur en
sem eru mikilvæg starfssemi okkar) þá er hún þó ríkur þáttur í okkar vinnu," segir m.a. í tilkynningu frá Aflinu.