Úrslitakeppnin á Íslandsmóti kvenna í íshokkí hefst í dag en það er Skautafélag Akureyrar og Björninn sem
berjast um titilinn. Fyrsti leikurinn fer fram á heimavelli SA og hefst viðureignin kl. 16:00 í Skautahöllinni. Vinna þarf þrjá leiki til þess að
verða Íslandsmeistari. SA hefur titil að verja og fyrirliði liðsins, Guðrún Kristín Blöndal, er bjartsýn á að liðinu takist að
verja titilinn.„Við ætlum að taka þetta í þremur leikjum. Þó að liðin séu nokkuð jöfn og sigrarnir hafi skipst á milli
liðanna í vetur, að þá höfum við meiri breidd. Hins vegar gæti þetta ráðist á vörninni hjá okkur því
Björninn hefur á að skipa landsliðsmarkvörðum og standa okkur framar á því sviði,” segir Guðrún.
Starfsfólk Norðurorku tók þátt í Treyjudeginum í dag og mætti í sínum uppáhalds íþróttatreyjum til stuðnings börnum með krabbamein og fjölskyldum þeirra.
Uppselt er á Vatnslitahátíð Íslands 2026 sem hefst á Akureyri í næstu viku. Von er á ríflega hundrað manns til bæjarins vegna viðburðarins, bæði innanlands frá og utan. Hátíðin hefst með opnun sýningar á um 90 vatnslitaverkum frá 21 þjóðlandi í Listasafninu á Akureyri fimmtudaginn 10. september.
Í tilefni af Gulum september tekur fjölbreyttur hópur samtaka á Akureyri höndum saman og býður til notalegrar samverustundar á Birkivelli í Kjarnaskógi laugardaginn 5. september klukkan 14.00.
Skipulögð brotastarfsemi hefur á undanförnum árum orðið umfangsmeiri og aðferðir brotahópa þróaðri og fjölbreyttari. Það kallar á öflug og samstillt viðbrögð þvert á ýmsa aðila m.a. stjórnvalda, löggæslu og atvinnulífsins. Mikilvægt er að löggjöf, rannsóknarheimildir og viðbúnaður þeirra sem fara með rannsókn og saksókn brota sæti framþróun í takt við breyttan veruleika
„Það liggur fyrir að við höfum glímt við ákveðinn húsnæðisvanda á Hlíð um langt skeið og hefur hann haft áhrif á okkar starfsemi. Það kom upp mygla í húsnæðinu og við þurftum að loka rýmum og því fylgdu mikil óþægindi fyrir okkar skjólstæðinga,“ segir Teitur Guðmundsson forstjóri Heilsuverndar og samstæðu.
Akureyringurinn Alfreð Gíslason fyrrum leikmaður og þjálfari KA hlaut í gær heiðursviðurkenningu Útflutningsverðlauna forseta Íslands 2026 fyrir einstakan árangur á alþjóðavettvangi og fyrir að hafa verið brautryðjandi íslenskra handknattleiksþjálfara erlendis.