Norma Mary, áður Akureyrin EA-110, var fyrsta skipið sem Samherji eignaðist og á sér því sérstakan sess í sögu félagsins.
Hún var byggð í Póllandi árið 1974 og hét Guðsteinn þegar núverandi eigendur Samherja eignuðust fyrirtækið árið
1983. Skipinu var breytt í frystitogara og var meðal þeirra fyrstu hér á landi sem útbúið var til að fullvinna og frysta afla um borð.
Skipið var selt árið 2002 til dótturfyrirtækis Samherja í Bretlandi Onward Fishing Company og nefnd Norma Mary. Það var dæmigert að ferillinn
endaði eins og oftast gekk, að skipið kom úr síðustu ferðinni með fullfermi eða tæplega 450 tonn af þorskflökum að verðmæti
rúmlega 300 milljónir króna. Skipstjóri á Normu Mary síðustu árin var Ásgeir Pálsson.
Togarinn Víðir hét áður Apríl HF og var keyptur frá Hafnarfirði árið 1985. Víðir var eins og Norma Mary
smíðaður í Póllandi árið 1974. Hann var lengdur og breytt í frystiskip árið 1991 og talsvert endurnýjaður árið
2002. Skipstjóri síðustu ár á Víði var Sigmundur Sigmundsson. Þessar breytingar eru liður í því að endurnýja
skip félagsins og að aðlaga skipaflota fyrirtækisins að aflaheimildum. Þetta kemur fram á vef Samherja.