Tjörnesingar vildu gjarnan fá veghefil á þing
20. apríl, 2017 - 16:26
Örlygur Hnefill Jónsson til hægri ásamt góðkunningja sínum Sigurjóni Benediktssyni tannlækni, sem einnig hefur löngum haldið sig hægra megin. Mynd: JS
Lögmaðurinn Örlygur Hnefill Jónsson fékk oftar en einu sinni góða kosningu í prófkjörum Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, en þurfti stundum að færa sig neðar á lista, m.a. til að koma að kandídötum af kvenkyni, vegna kynjakvóta.
Eitt sinn töldu gárungar að töluvert meint fylgi Örlygs á Tjörnesi og í Norðursýslunni mætti rekja til prentvillu í kosningabæklingi, þar sem Hnefill varð Hefill.
“Hefill, það er akkúrat það sem okkur vantar á Alþingi og jafnvel jarðýtu líka!” Ku Tjörnesingar og Keldhverfingar hafa sagt, en þeir höfðu þá lengi búið við óviðunandi ástand í vegamálum. Og því augljóslega meira gagn af hefli en Hnefli. JS
Nýjast
-
Steiktur fiskur sem alltaf hittir í mark
- 29.04
„Það eru auðvitað mikil forréttindi að hafa gott aðgengi að fyrsta flokks hráefni, auk þess sem fiskur er alltaf vinsæll hérna í mötuneytinu,“ segir Theodór Haraldsson matreiðslumeistari í mötuneyti ÚA. Hann gefur lesendum heimasíðunnar uppskrift að steiktum fiski sem reglulega er á boðstólum í mötuneytinu. Áhersla á fisk „Þetta er stór vinnustaður og eðli málsins samkvæmt er smekkur fólks misjafn en þessi fiskréttur fær alltaf góða dóma hjá starfsfólkinu. Við getum sagt auppskriftin sé klassísk og hún er alls ekki flókin. Með fiskinum höfum við remúlaði og brúnaðan lauk. Okkur finnst sjálfsagt að leggja áherslu á fiskinn, enda topp hráefni á allan hátt og hollt. Þetta er sem sagt réttur sem hittir alltaf í mark,“ segir Theodór. Hægt að leika sér með þorsk „Hérna í ÚA er verið að vinna afurðir fyrir kröfuharða viðskiptavini, meðal annars helstu verslunarkeðjur Evrópu. Það er stór kostur að geta farið niður í vinnsluna og náð í brakandi ferskt hráefni, enda er hérna fiskur á boðstólum tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Oftast verður þorskur fyrir valinu, enda er hægt að leika sér með þorskinn á svo margvíslegan hátt. Það þarf að passa sérstaklega að ofelda ekki fiskinn, þá verður hann heldur þurr. Og ef fólk er að elda fisk í ofni er gott ráð að lækka hitann og kynda ofninn svo vel skömmu áður en safaríkur fiskurinn er borðinn á borð. Ég er ekki frá því að algengustu mistökin felist einmitt í að ofelda fiskinn, reyndar getur línan í þessum efnum verið nokkuð fín,“ segir Theodór Haraldsson matreiðslumeistari. Hérna er uppskriftin góða: Fiskur í raspi fyrir fjóra til sex: 1,5 kg Þorskur 6 stk egg 500 gr rasp 500 gr hveiti 50 gr salt 50 gr hvítur pipar 2 msk sítrónupipar 1 msk paprikukrydd 1 msk karrí 1 msk laukduft Aðferð: Þorskurinn er skorinn niður í hæfilega bita. Eggin eru pískuð saman í skál ásamt kryddum. Síðan er fiskinum velt upp úr hveiti, síðan velt upp úr eggjunum og svo í lokin upp úr raspinu. Fiskurinn er svo steiktur á pönnu upp úr smá olíu og klípu af smjöri. Remúlaði 50 gr mæjónes 50 gr súrmjólk 1 stk laukur fínt saxaður 3 msk dijon sinnep 1 msk sætt sinnep 75 gr súrar gúrkur 2 msk capers saxaður Aðferð: Þessu er öllu blandað saman og smakkað til. Brúnaður laukur 2 stk laukur 1 msk steinselja þurrkuð Olía til steikingar Smá klípa smjör Aðferð: Laukurinn er sneiddur niður og steiktur á pönnu þangað til hann verður fallega brúnn á litinn. Þá er smá smjöri bætt við á pönnuna og laukurinn látinn malla í nokkrar mínútur til viðbótar. Fiskurinn borinn fram ásamt remúlaðinu, soðnum kartöflum, brúnuðum lauk og sítrónusneið. Gangi ykkur vel og verði ykkur að góðu ! Þessa fínu hugmynd að kvöldmatnum var fyrst að finna á www.samherji.is -
Fjórir norðanmenn unnu brons á Íslandsmótinu í bridge.
- 29.04
Akureyringarnir, Frímann Stefánsson, Pétur Guðjónsson og Reynir Helgason gerðu góða ferð suður til Reykjavíkur un helgina með Mývetningnum Birni Þorláks þar sem verkefnið var að etja kappi við sterkustu lið landsins í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni. Sveitin keppti undir merki Kjöríss. -
Nýta jarðvarma til framleiðslu á ofurfæðu úr smáþörungum
- 28.04
Mýsköpun er framsækið nýsköpunarfyrirtæki -
Hætt við að hætta við
- 28.04
Bæjarráð Akureyrar hefur fallið frá tillögu sem fram kom um að halda ekki Listasumar á Akureyri að þessu sumri. Tillagan snérist um að í tilraunaskyni yrði ekki Listasumar í ár en fjárveiting sem ætluð væri til hátíðarinnar rynni þess í stað til Akureyrarvöku. -
Akureyri - Nauðsynlegt að fjölga í lögreglunni
- 28.04
„Þrátt fyrir fjölgun íbúa og gríðarlega fjölgun ferðamanna hefur verið bent á að jafn margir lögreglumenn sinni útkalli á Akureyri og nágrenni og var árið 1980, við því sé nauðsynlegt að bregðast og fjölga lögreglumönnum,“ segir í bókun bæjarstjórnar Akureyrar -
Bergið Headspace, ráðgjafasetur fyrir ungt fólk á Akureyri
- 28.04
„Starfsemin fer vel af stað hjá okkur og ljóst að þörf er fyrir þessa þjónustu,“ segir Erla Lind Friðriksdóttir ráðgjafi Bergsins á Akureyri, en Bergið Headspace er ráðgjafasetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 25 ára. Bergið var stofnað árið 2019 og hefur verið starfandi síðan á höfuðborgarsvæðinu. Starfsemin hófst á Akureyri í byrjun þessa mánaðar og er staðsett í Íþróttahöllinni á Akureyri, í sama húsnæði og Virkið. -
Fór að hekla á meðan hann var fótbrotinn
- 27.04
„Þetta var skemmtilegt verkefni og veitt mér mikla gleði,“ segir Kormákur Rögnvaldsson hársnyrtinemi sem dundaði sér við það að hekla heilmikið dúlluteppi, með 187 dúllum, 10X10 að stærð hver. Ástæða þess að hann hóf að hekla teppið var sú að hann fótbrotnaði og þegar fóturinn þarf hvíld er best að nýta hendurnar til að gera eitthvað uppbyggilegt á meðan brotið grær. -
Hreyfiglöð handboltakempa og lektor í lífeðlisfræði
- 27.04
Vísindafólkið okkar er mánaðarleg kynning á vísindafólkinu okkar. Vísindamanneskjan í apríl er Nanna Ýr Arnardóttir, lektor í lífeðlisfræði við Hjúkrunarfræðideild. Nanna Ýr hefur ofurtrú á hreyfingu sem forvörn hverskonar og hefur með það að leiðarljósi aflað sér yfirgripsmikillar þekkingar á því sviði. -
Rekstur Norðurorku skilaði 629 milljón króna hagnaði
- 27.04
Rekstur Norðurorku gekk vel á liðnu ári. Ársvelta samstæðunnar var 5 milljarðar króna. Hagnaður ársins var 629 milljónir króna eftir skatta, eigið fé er 10 milljarðar króna. Á aðalfundi félagsins fyrr í vikunni var ákveðið að ekki verði greiddur arður af hlutafé. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og NORAK ehf.
Athugasemdir