Tilboði frá Altis tekið í búnað í leikfimisal við Giljaskóla

Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti á síðasta fundi sínum að taka tilboði frá Altis ehf. í búnað í leikfimisalinn í Íþróttamiðstöð Giljaskóla. Fyrirtækið átti lægra tilboðið af tveimur sem bárust, en það hljóðaði upp á rúmar 6,2 milljónir króna. Tilboð frá Spennandi ehf. hljóðaði upp á rúmar 10,4 milljónir króna. Einnig voru á fundinum kynntar niðurstöður verðkönnunar vegna húsgagna í 7. áfanga VMA.  

Þrjú verðtilboð bárust frá  INNX innréttingum ehf., tvö frá Pennanum ehf. og eitt frá Á. Guðmundssyni ehf. Einnig var kynnt niðurstaða verðkönnunar vegna baðbekkjar, en tilboð bárust frá A. Karlssyni ehf., Fastus ehf. og Eirbergi ehf.  Stjórn Fasteigna Akureyrarbæjar samþykkti að taka tilboði Á. Guðmundssonar ehf. í skólahúsgögn og tilboði Fastus ehf. í baðbekk.  Framkvæmdastjóra, Guðríði Friðriksdóttur, var falið að ganga til samninga við þessa aðila.

Nýjast