Þungar áhyggjur af stöðu Smámunasafnsins

Frá Smámunasafninu    Mynd  MÞÞ
Frá Smámunasafninu Mynd MÞÞ

Stjórn Félags íslenskra safna og safnamanna hafa lýst yfir þungum áhyggjum af stöðu mála hjá Smámunasafni Sverris Hermannssonar í Sólgarði í Eyjafjarðarsveit. Félagið hefur sent sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar erindi vegna málsins en að því er fram kemur þar segir stjórnin sem stefnuleysi virðist ríkja hjá sveitarstjórn varðandi safnið og framtíð þess. Húsnæðið hafi verið auglýst til sölu, „og algjör óvissa ríkir um framtíð safnsins og þeirrar starfsemi sem þar hefur verið.

Fram kemur í erindi félagsins að safnið sé einstakt í sinni röð og eigi sér ekki hliðstæðu hérlendis. Í lýsingu á safninu á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar segir að safnið hafi þá sérstöðu að vera ekki safn einhverra ákveðinna hluta heldur allra mögulegra hluta. „Hversdaglegir hlutir eru þar mitt á meðal afar óhefðbundinna hluta. Því hefur safnið stórkostlegt menningarlegt gildi fyrir okkur og komandi kynslóðir.“

Eyjafjarðarsveit fékk safnið að gjöf frá Sverri Hermannssyni, „og er mikilvægt að sveitarstjórnendur átti sig ábyrgðinni sem felst í móttöku slíkrar gjafar,“ segir í erindi félagsins. Vísað er til siðaregla Alþjóðaráðs safna, þriðju grein þar sem segir: „Söfn bera sérstakar skyldur gagnvart öllum til að varðveita, tryggja aðgang að og túlka þau frumgögn og -heimildir sem safnað hefur verið og geymd eru í safneign þeirra.“

Safninu sómi sýndur fram til þessa

Segir félagið að fram til þessa hafi gjöfinni verið sómi sýndur, safnið verið aðgengilegt gestum, sýningin fagmannalega upp sett á vandaðan hátt og faglegu starfi við skráningu safnkosts sinnt af kostgæfni, „en með ákvörðun sveitarstjórnar um sölu á Sólgarði og orðum sveitarstjóra að möguleiki sé á að kaupandi taki fyrir safneignina og sýningu er stöðu safnsins stefnt í mikla tvísýnu og sýnt að skilningi á varðmæti safneignarinnar og skyldum sveitarstjórnar gagnvart safninu er ábótavant.

Stjórnin hvetur sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar til að endurskoða ákvörðun sína og horfa frekar til þess að efla og styrkja starfsemina samfélaginu til heilla.


Athugasemdir

Nýjast