Þrjár nýjar hleðslustöðvar á Akureyri

Hleðslustöðvar við Ráðhús. mynd/akureyri.is
Hleðslustöðvar við Ráðhús. mynd/akureyri.is

Fallorka opnaði nýlega þrjár 2x22 kW hleðslustöðvar á Akureyri. Stöðvarnar eru þær fyrstu sem Fallorka opnar með greiðslulausn Ísorku. Til að nota stöðvarnar þarf annaðhvort að greiða með appi Ísorku í snjallsíma eða greiðslulykli þeirra. Hér eru nánari upplýsingar um appið. 

Verkefnið er hluti af styrkúthlutun Orkusjóðs og er samstarfsverkefni Fallorku, Vistorku, Norðurorku og Akureyrarbæjar. Rafeyri sá um uppsetningu og tengingar á stöðvunum. Fallorka rekur nú alls fjórar stöðvar á Akureyri og geta átta bílar hlaðið á sama tíma. Tvær stöðvar eru við Ráðhúsið, ein við Sundlaug Akureyrar og ein við Amtsbókasafnið. Fallorka hefur í hyggju að reisa fleiri stöðvar á starfssvæði sínu á næstu misserum.

Mikil aukning hefur verið á fjölda rafbíla á Íslandi undanfarin misseri og eru þessar hleðslustöðvar kærkomin viðbót við hleðslustöðvaflóru bæjarins. Hér má nálgast upplýsingar um hleðslustöðvar á Akureyri.

Fallorka býður 50% kynningarafslátt á stöðvunum í september.

 


Athugasemdir

Nýjast