Strax er fréttinn var send út var haft samband við forsvarsmenn Íþróttafélagsins og nokkur fyrirtæki hér í bæ ásamt Akureyrastofu buðust til að styrkja félagið til að halda áfram þessum mikilvæga þætti í jólahaldi Akureyringa., þ.e.a.s. að halda þrettándagleði. Í morgun tók svo stjórn Þórs þá ákvörðun að endurskoða fyrri ákvörðun sýna og halda Þrettándagleði Þórs. Ákveðið hefur verið að halda brennuna og kveðja jólin með gleði dansi,álfum, tröllum og ýmsum öðrum kynjaverum þann 13. janúar, á brennustæðinu við Réttarhvamm. Íþróttafélagið Þór vill koma á framfæri þakklæti til þeirra aðila sem brugðust svo skjótt við og gera nú félaginu kleift að halda við þessum merka menningararfi okkar Akureyringa sem þrettándagleði félagsins er og hefur verið um mjög langt skeið.