Framboðsfrestur vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor, rann út í kvöld og bárust 13 tilkynningar um framboð. Prófkjörið fer fram laugardaginn 13. febrúar nk. Ekki kemur fram í tilkynningu frá flokknum hvaða sæti einstakir frambjóðendum sækjast eftir.
Þó liggur fyrir að Sigrún Björk Jakobsdóttir forseti bæjarstjórnar gefur kost á sér í 1. sæti og Elín Margrét Hallgrímsdóttir bæjarfulltrúi og Ólafur Jónsson varabæjarfulltrúi gefa kost á sér í 2. sætið. Þá gefur Kristinn F. Árnason Hríseyingur kost á sér í 5-6. sæti. Annars eru frambjóðendur eftirtaldir í stafrófsröð:
Anna Guðný Guðmundsdóttir iðjuþjálfi og háskólanemi
Björn Ingimarsson hagfræðingur
Elín Margrét Hallgrímsdóttir símenntunarstjóri og bæjarfulltrúi
Huld S. Ringsted verslunarrekandi
Kolbrún Sigurgeirsdóttir grunnskólakennari
Kristinn Frímann Árnason bústjóri
Njáll Trausti Friðbertsson flugumferðarstjóri og viðskiptafræðingur
Ólafur Jónsson héraðsdýralæknir
Ragnar Sigurðsson laganemi og formaður Félags stúdenta við Háskólann á Akureyri
Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarfulltrúi
Sigurður Guðmundsson verslunarmaður
Svavar Hannesson vátryggingaráðgjafi
Unnsteinn Jónsson verksmiðjustjóri