Þorsteinn Már stígur tímabundið til hliðar

Þorsteinn Már Baldvinsson fyrir framan eitt af skipum Samherja.
Þorsteinn Már Baldvinsson fyrir framan eitt af skipum Samherja.

Forstjóri og stjórn Samherja hafa komist að samkomulagi um að forstjóri félagsins, Þorsteinn Már Baldvinsson, stígi tímabundið til hliðar þar til helstu niðurstöður yfirstandandi innri rannsóknar á ætluðum brotum dótturfélags í Namibíu liggja fyrir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samherja.

Björgólfur Jóhannsson, fyrrum forstjóri Icelandair Group, hefur tekið tímabundið við stöðu forstjóra Samherja. Á komandi dögum mun Björgólfur leggja áherslu á að hitta starfsfólk og helstu hagsmunaaðila.

Yfirstandandi rannsókn, sem er í höndum alþjóðlegu lögmannsstofunnar Wikborg Rein, mun halda áfram og mun Wikborg Rein heyra beint undir stjórn félagsins.

Hjá Samherja starfa um 850 manns á Íslandi og fjöldi manns erlendis. Við tökum þetta mikilvæga skref til að tryggja sem best hlutleysi rannsóknarinnar. Við viljum stunda heiðarleg viðskipti og leggjum okkur fram um að starfa í samræmi við gildandi lög og reglur”, segir Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnarformaður Samherja.

"Til þessa hafa engin yfirvöld haft samband við Samherja en við munum að sjálfsögðu starfa með þeim stjórnvöldum sem kunna að sýna starfsemi Samherja á Íslandi, í Namibíu eða annars staðar áhuga," segir ennfremur í tilkynningu.

Haft er eftir Björgólfi Jóhannssyni að Samherji gegni mikilvægu hlutverki í sjávarútvegi á alþjóðavísu, "og berum við ábyrgð gagnvart okkar fólki og viðskiptavinum. Ég er dapur yfir þessum kringumstæðum en ég mun gera mitt besta að gæta hagsmuna Samherja og starfsfólksins”, segir Björgólfur Jóhannsson.

Þá segir að ekki sé að vænta frekari umfjöllunar af hálfu Samherja fyrr en staðreyndir úr ofangreindri rannsókn taka á sig skýrari mynd.

 


Athugasemdir

Nýjast