Þórsarar fóru létt með Völsung

Sveinn Elías Jónsson leikmaður Þórs sækir að marki Völsungs í leik liðanna í Boganum í gærkvöld.
Sveinn Elías Jónsson leikmaður Þórs sækir að marki Völsungs í leik liðanna í Boganum í gærkvöld.

Þórsarar lögðu Völsung að velli, 4-1, í opnunarleik Hleðslumótsins í knattpspyrnu. Sveinn Elías Jónsson og Orri Freyr Hjaltalín skoruðu tvö mörk hvor fyrir Þór í leiknum en mark Völsungs skoraði Hrannar Steingrímsson.

Hér fer umfjöllun Jan Eric Jessen um leikinn.

Leikurinn fór frekar rólega af stað, Þórsarar þó heldur líklegri en Völsungar sýndu
mikla baráttu og vörðust vel. Á lokamínútu fyrri hálfleiks fékk Sveinn
Elías, framherji Þórs, góða sendingu inná teiginn og afgreiddi boltann vel
í netið. Staðan í hálfleik var því 1-0 Þórsurum í vil.

Seinni hálfleikur byrjaði með miklum látum, Þórsarar komust nokkrum sinnum
einir í gegnum vörn Völsunga en það voru hins vegar Völsungar sem jöfnuðu
leikinn. Markið kom eftir aukaspyrnu á miðjum velli, Jónas Friðriksson
sendi háan bolta inná teig - markvörður Þórsara var of seinn út í boltann
og Hrannar Steingrímsson skoraði í tómt markið.

Þórsarar héldu áfram að sækja og vera meira með boltann en Völsungar reyndu
skyndisóknir. Þórsarar náðu að skora fljótlega - en eftir mikið klafs inná
teignum snéri Orri Freyr sér og skaut í innanvert hliðarnetið. Þórsarar
héldu áfram að sækja grimmt. Kristni Björnsson átti stungusendingu inná
Svein Elías sem virtist misheppnuð en misskilningur varð milli varnarmanns
og markvarðar Völsungs og það nýtti Sveinn sér og renndi boltanum í
autt markið. Seinasta markið kom síðan eftir gott upphlaup Sveins Elías
upp hægri kant og hann renndi boltanum fyrir markið og Orri Freyr þurfti
lítið að hafa fyrir því að rúlla boltanum í autt markið.

Góður sigur hjá Þórsurum á ungu og spræku liði Völsunga. Maður leiksins
verður að teljast Ingólfur Örn Kristjánsson markvörður Völsunga sem varði
mjög vel allan leikinn. Orri Freyr stóð sig einnig mjög vel í liði
Þórsara.

Áhorfendur: 139

Nýjast