Miðaldadagar á Gásum við Eyjafjörð fara nú fram um helgina en þetta er í ellefta sinn sem hátíðin er haldin. Miðaldadagar fara ört stækkandi að sögn Skúla Gautasonar framkvæmdastjóra. Á Gásum er reynt að endurskapa lífið við þennan forna verslunarstað eins og það gæti hafa litið út í kringum árið 1300.
Nánar er fjallað um þessa merku hátíð og rætt við Skúla Gautason í prentútgáfu Vikudags