Þór vann toppliðið

Þór gerði góða ferð til Ólafsvíkur í dag er liðið skellti Víkingi, 2-1, í 1. deild karla í knattspyrnu. Það var Chukwudi Chijindu sem skoraði bæði mörk Þórsara í leiknum sem komust í 2-0, en Chijindu hefur fundið sig vel í fyrstu leikjum sínum með Þór. Torfi Karl Ólafsson minnkaði muninn fyrir Ólafsvíkinga fjórum mínútum fyrir leikslok. Þór fer upp í annað sæti deildarinnar með 26 stig og er tveimur stigum á eftir Víkingi Ó. sem hefur 28 stig á toppnum en Þór á leik til góða.

Nýjast