Þór úr leik í Lengjubikarnum

Þór er úr leik í Lengjubikarkeppni karla  í knattspyrnu eftir tap gegn Val í Boganum í gær í 8- liða úrslitum keppninnar. Ekkert mark var skorað í venjulegum leiktíma né framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Valur betur, 4:2, og tryggði sér sæti í undanúrslitum keppninnar.

Þeir Aleksandar Linta og Kristján Steinn Magnússon voru þeir einu sem nýttu sínar vítapspyrnu í leiknum fyrir Þór. Fyrir Val skoruðu þeir Sigurbjörn Hreiðarsson, Rúnar Már Sigurjónsson, Viktor Unnar Illugason og Arnar Sveinn Geirsson.

 

 

Nýjast