Þór og KF skildu jöfn, 1-1, er liðin áttust við á Hleðslumótinu í Boganum í gærkvöld. Þórður Birgisson kom Fjallabyggð yfir seint í fyrri hálfleik en Ingólfur Árnason jafnaði metin fyrir Þór úr vítaspyrnu snemma í seinni hálfleik. Liðin eru því jöfn að stigum eftir fyrstu umferðina og sitja í öðru og þriðja sæti B-riðils.
Jan Eric Jessen er með þessa umfjöllun um leikinn.
Jafnræði var með liðunum framan af leik en um miðjan fyrri hálfleik náðu leikmenn KF undirtökunum. Á 30. mínútu fékk KF dæmda aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Þórsara. Þórður Birgisson tók spyrnuna og skoraði með laglegu skoti í nærhornið. Átta mínútum síðar tókst Þórði að spóla sig í gegnum vörn Þórs2 en Ari Már Egilsson markvörður Þórsara varði boltann í stöng. Staðan var því 1-0 í hálfleik, Fjallabyggðarstrákum í vil. Síðari hálfleikur var nokkuð svipaður þeim fyrri að því leytinu til að KF var nokkru sterkari aðilinn og tókst að skapa sér nokkur marktækifæri meðan sóknarleikur Þórs2 var heldur bragðdaufur. Á 57. mínútu fá Þórsarar dæmda vítaspyrnu eftir að varnarmaður KF hafði togað sóknarmann Þórs2 niður í vítateignum. Ingólfur Árnason steig á punktinn og jafnaði leikinn með góðri spyrnu. Hættulegasta færi KF-inga í síðari hálfleik fékk Þórður Birgisson á 74. mínútu þegar hann slapp einn í gegnum varnarlínu Þórsara en Ari sá við honum í markinu. Í uppbótartíma leiksins fékk Þórður svo að líta beint rautt spjald fyrir kjaftbrúk.Leikmenn liðanna sættust á skiptan hlut og sitja því í 2. og 3. sæti B-riðils eftir fyrstu umferðina.