Það eru erfið verkefni sem bíða Akureyrarliðanna, Þórs og KA í kvöld, þegar 17. umferð 1. deildar karla í knattspyrnu fer af stað. Þór fær topplið Selfoss í heimsókn en KA sækir Hauka heim að Ásvöllum en Haukar eru í öðru sæti deildarinnar. Eftir stórt tap gegn HK í síðasta leik eru Þórsarar eflaust ákveðnir í að rífa sig upp og sýna hvað í þeim býr fyrir framan áhorfendur á Þórsvellinum í kvöld. Fyrir leikinn munar 14 stigum á liðinum, Selfoss situr á toppnum með 35 stig en Þór hefur 21 stig í áttunda sæti deildarinnar. Leikurinn hefst kl. 18:30.
Ekkert annað en sigur kemur til greina fyrir KA í kvöld gegn Haukum, ætli liðið sér að eiga möguleika á sæti í efstu deild á næsta ári. Haukar eru sem segir í öðru sæti deildarinnar með 31 stig, fimm stigum fyrir ofan KA sem situr í fjórða sæti með 26 stig og því er um sannkallaðann sex stiga leik að ræða.
Sigri Haukar í kvöld þýðir það að þeir ná átta stiga forskoti á KA sem yrði þess valdandi að þeir gulbláu myndu væntanlega þurfa að salta drauminn um sæti í efstu deild um sinn. Sigri KA hinsvegar mun toppbaráttan opnast upp á gátt og allt yrði opið fyrir lokasprettinn í deildinni.
Leikurinn á Ásvöllum hefst kl. 19:15.