Þór fer af stað á nýjan leik í 1. deild karla í körfubolta í kvöld eftir stutt hlé þegar Valur mætir í heimsókn í Íþróttahús Síðuskóla. Fyrir leikinn munar sex stigum á liðinum, Valur hefur tíu stig í 4. sæti deildarinnar en Þór er í 8. sæti með fjögur stig.
Eftir röð af tapleikjum komst Þór loks á sigurbraut í síðustu umferð með að leggja Hrunamenn af velli og norðanmenn freista þess að halda sigurgöngunni áfram gegn Valsmönnum. Leikur Þórs og Vals í kvöld hefst kl. 19:15.