Þór fær danskan bakvörð
01. febrúar, 2022 - 07:51
Egill Páll Egilsson - egillpall@vikubladid.is
Körfuknattleiksdeild Þórs hefur samið við Danska bakvörðinn August Emil Haas og mun hann leika með liðinu það sem eftir lifir leiktíðar.
August er 24 ára, 188 cm bakvörður, sem síðast lék með BMS Herlev í dönsku úrvalsdeildinni. Árin 2016-2019 lék hann í bandaríska háskólaboltanum, en þar áður var hann á mála hjá danska félaginu SISU.
Þá hefur hann einnig leikið fyrir öll yngri og A landslið Danmerkur. Leikmaðurinn hefur þegar fengið leikheimild.
Nýjast
-
Lokaorðið - Mæður allra alda
- 05.05
Það styttist trúlega í þriðju heimsstyrkjöldina, og þó er býsna stutt síðan þeirri síðustu lauk, elsta kynslóðin man þá tíma vel. -
Umhverfis- og mannvirkjaráð Akureyrar - Blöndulína 3 þrengir að landlitlu sveitarfélagi
- 05.05
„Um er að ræða gríðarlega mikla hagsmuni Akureyrarbæjar, enda ljóst að umrædd lína þrengir að því landlitla sveitarfélagi sem Akureyrarbær er, getur hindrað vöxt þess og er líkleg til að rýra gæði þeirrar byggðar sem fyrir er,“ segir í bókun umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrar, en á fundi ráðsins voru lögð fram drög að umsögn vegna lagningar Blöndulínu í gegnum land Akureyrarbæjar frá norðri og að Rangárvöllum. -
Heiðurviðurkenningar Akureyrarbæjar
- 05.05
Heiðursviðurkenningar Akureyrarbæjar fyrir vel unnin störf í þágu menningar og samfélagsins hlutu að þessu sinni nafnarnir Þorsteinn Pétursson, Steini Pje, fyrir óeigingjarnt framlag sitt til varðveislu og nýtingar eikarbátsins Húna II, og Þorsteinn E. Arnórsson, fyrir mikilsvert framlag til varðveislu iðnaðarsögu Akureyrar og reksturs Iðnaðarsafnsins á Akureyri. -
KA er Íslandsmeistari í blaki kvenna 2023-24
- 04.05
KA er Íslandsmeistari í blaki kvenna eftir stórkostlegan 2-3 endurkomusigur að Varmá í Mosfellsbæ í dag. Stelpurnar okkar lentu 2-0 undir í hrinum en sneru enn einum leiknum sér í vil og standa uppi sem Íslandsmeistarar þriðja árið í röð! -
Jonna Jónborg Sigurðardóttir bæjarlistamaður Akureyrar 2024
- 04.05
„Markmiðið er að færa listina út til fólksins. Koma með listina til þess í stað þess að það komi í ákveðna sali eða gallerí til að skoða listaverk,“ segir Jonna Jónborg Sigurðardóttir bæjarlistamaður á Akureyri árið 2024. Hún vinnur að undirbúningi sýningar sem nefnist Ferðalag. Það hefst nú á starfsàrinu og stendur í tvo mánuði. Einnig er hún á fullu við að hanna og útbúa svöng ruslatröll sem prýða munu nokkra rusladalla á Akureyri. -
Undirbúningur fyrir hátíðarhöld sjómannadagsins á Akureyri hafinn.
- 04.05
Sjómannadagurinn var endurvakinn á Akureyri í fyrra og tókst vel til, svo vel að undirbúningur er hafinn fyrir hátíðarhöld á komandi sjómannadag fyrstu helgina i júni. -
Kvarssandur frá PCC gæti orðið að varnargörðum við náttúruvá
- 04.05
Verkefnið Sterk steypa vann fyrstu verðlaun í áskorun PCC Bakki Silicon, á Krubbi-hugmyndahraðhlaupi sem haldið var á STÉTTINNI á Húsavík í mars -
Norðurorka - Leit að leka í hitaveitu með drónum
- 03.05
Dagana 7.-11. maí munu starfsmenn frá umhverfisverkfræðistofunni ReSource International gera lekaleit á hitaveitu fyrir hönd Norðurorku. Að þessu sinni yfir Eikar- og Daggarlundi á Akureyri, í Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshverfi, Kristnes og austan frá Kaupangi fram að Stóra Hamri) og á Svalbarðseyri. -
Ferðafélag Akureyrar og Stóri-plokkdagurinn - Félagsmenn tóku til hendinni að venju
- 03.05
„Okkur finnst minna um rusl núna en undanfarin tvö ár, sem ef til vill er vegna þess að svæðið er hreinsað skipulega á hverju ári,“ segir Þorgerður Sigurðardóttir formaður Ferðafélags Akureyri. Stóri-plokkdagurinn var haldinn um liðna helgi og tóku félagsmenn FFA til hendinni að venju
Athugasemdir