05. október, 2020 - 09:13
Fréttir
Mynd/María Helena Tryggvadóttir.
Neyðarstig almannavarna vegna Covid-19 tók gildi á miðnætti, á sama tíma og hertar sóttvarnaaðgerðir. Íbúar Akureyrar eru eins og aðrir landsmenn eindregið hvattir til að sýna ítrustu varkárni í öllu sínu daglega lífi, er fram kemur á vef bæjarins.
Virk smit á Akureyri eru fá þessa stundina en það getur breyst á augabragði. Minnt er á að síðasta vor kom fyrsta bylgja Covid-19 til Akureyrar 1-2 vikum eftir að hún gaus upp á höfuðborgarsvæðinu og ekki sé ástæða til að ætla að þróunin verði öðruvísi núna.
"Það er undir okkur sjálfum komið að sporna gegn því að þessi bylgja faraldursins verði mjög alvarleg á Akureyri," segir á vef bæjarins.
Áhrif neyðarstigs á þjónustu Akureyrarbæjar eru helst þessi:
- Í allri starfsemi á vegum Akureyrarbæjar verða sóttvarnir auknar frá og með morgundeginum og mælst til þess að fólk sem sækir þjónustu til sveitarfélagsins nýti sér rafrænar lausnir og síma eins og kostur er. Í því sambandi er sérstaklega vakin athygli á þjónustugáttinni á heimasíðu bæjarins þar sem fólk getur sjálft annast afgreiðslu ýmissa erinda.
- Hjá Öldrunarheimilum Akureyrar verður skerpt á öllum sóttvarnaraðgerðum og m.a. aðgreint enn frekar en nú er á milli eininga. Heimsóknir til íbúa miðast við eina heimsókn á dag og einungis einn gest í einu.
- Í grunn- og leikskólum bæjarins verður leitast við að halda áfram uppbyggilegu skólastarfi en hert á öllum vörnum og viðbúnaði gagnvart Covid-19. Stöðugt skal minnt á eins metra regluna og persónulegar sóttvarnir, foreldrar mega eingöngu koma í forstofur leikskólanna og þeim tilmælum er beint til starfsfólks að það fari ekki á landsvæði þar sem nýgengi smita er hátt nema brýna nauðsyn beri til. Samgangur á milli skóla verður hafður í algjöru lágmarki.
- Heimaþjónustu á vegum Akureyrarbæjar verður sinnt eins og kostur er.
- Sundlaugar sveitarfélagsins verða opnar en með þrengri fjöldatakmörkunum eða 50% af leyfilegum fjölda samkvæmt starfsleyfi.
- Söfn og menningarstofnanir verða opin en með 20 hámarksfjölda gesta.
- Allir starfsmenn Akureyrarbæjar eru hvattir til að virða eins metra regluna og setja upp rakningarforrit í símum sínum ef það hefur ekki gert það nú þegar.
- Starfsfólki Akureyrarbæjar í afgreiðslustörfum verður skylt að bera andlitsgrímur.