Þjóðhagslegur ábati

Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifar
Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins skrifar

Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokki veltir fyrir sér í grein sem hann skrifar á Facebookvegg sinn þjóðhagslegum ábata sem hann telur að felist í beinu flugi millilanda um Akureyrarflugvöll. Njáll veitti samþykki sitt fyrir þvi að skrif hans mætti birta á vef Vikublaðsins.

Flugvélamyndböndin verða tvö þessa helgina… ja í hið minnsta . Ég náði bæði lendingu og flugtaki í fyrstu ferð easyJet frá Manchester til Akureyrar í vetur. Það er alltaf gaman að fylgjast með millilandavél á Akureyrarflugvelli og sérstaklega ánægjulegt að sjá Manchesterflugið hefjast á ný.
Beina flugið frá Akureyri til London Gatwick og Manchester skiptir miklu máli fyrir íbúa á Norður- og Austurlandi. Fyrir marga þýðir það styttri ferð að flugvellinum þegar haldið er utan og einfaldari heimferð. Um leið opnast fleiri möguleikar á áframhaldandi flugi frá Bretlandi. Þetta skiptir máli þegar fólk skipuleggur frí, heimsækir fjölskyldu eða þarf að ferðast vegna vinnu.
 
Það er jákvætt skref að Manchesterflugið var fært yfir á föstudaga og sunnudaga í vetur. Gatwick-flugið er á laugardögum og þriðjudögum eins og undanfarna vetur. Þannig flýgur easyJet til og frá Akureyri fjóra daga vikunnar. Það er mikil bót. Nú er til dæmis hægt að skreppa til Manchester yfir helgi og ferðast á milli Akureyrar og Bretlands um annan flugvöllinn á leiðinni út og hinn á leiðinni heim.
Fyrir ferðaþjónustuna á landsbyggðinni er ekki síður mikilvægt að gestir geti hafið Íslandsferðina á Akureyri. Þaðan geta þeir haldið áfram um Norðurland og austur á firði. Gestir sem koma um vetur skapa viðskipti hjá gististöðum, veitingahúsum, bílaleigum og fyrirtækjum sem bjóða upp á afþreyingu. Fleiri viðskiptavinir yfir vetrarmánuðina auðvelda fyrirtækjum að halda úti þjónustu og störfum allt árið.
 
Við Íslendingar höfum fjárfest í flugvöllum, vegum og öðrum innviðum víða um land. Þjóðhagslegi ábatinn af því að nýta þessa fjárfestingu betur er mikill. Með beinu flugi til Akureyrar gefum við fleirum kost á að ferðast um Norður- og Austurland utan háannatímans. Þannig geta tekjur af ferðaþjónustu dreifst betur um landið og yfir árið. Fyrir byggðarlögin skiptir sú dreifing máli, enda byggja mörg fyrirtæki afkomu sína að stórum hluta á fáum sumarmánuðum.
 
Það er því fullt tilefni til að fagna því þegar fyrsta vélin frá Manchester snertir brautina á Akureyri í upphafi vetrar. Ég læt bæði myndböndin fylgja svo þið getið séð lendinguna og flugtakið.
 
Allt Ísland – allt árið.
 
Með þvi að smella á slóðina hér  fyrir neðan má horfa á myndbandið sem Njáll nefnir i skrifum hBA,
 
 

Nýjast