Tekið verði upp þriggja íláta flokkunarkerfi í Eyjafjarðarsveit

Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar leggur til að tekið verði upp þriggja íláta flokkunarkerfi á hverju heimili en niðurstöður skoðanakönnunar um sorpmál voru til umræðu á síðasta fundi nefndarinnar. Lagt er til að flokkunartunna fyrir endurvinnanlegan úrgang verði tæmd á 4 vikna fresti. Lífrænt ílát eða heimajarðgerðartunna, fyrir þá sem það kjósa, verði tæmd á tveggja til fjögurra vikna fresti, eftir árstíð.  

Þriðja tunnan verði fyrir óflokkað sorp, tæmd á fjögurra vikna fresti. Fyrir annan úrgang, eins og timbur, járn, garðaúrgang o.þ.h. verði grenndargámar á svipuðum stöðum og verið hefur. Nefndin leggur einnig til að sveitarstjóri geri tillögu að útboðsgögnum í samræmi við ofangreind atriði.   

Nýjast