18. nóvember, 2010 - 13:22
Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar leggur til að tekið verði upp þriggja íláta flokkunarkerfi á hverju heimili en niðurstöður
skoðanakönnunar um sorpmál voru til umræðu á síðasta fundi nefndarinnar. Lagt er til að flokkunartunna fyrir endurvinnanlegan úrgang verði
tæmd á 4 vikna fresti. Lífrænt ílát eða heimajarðgerðartunna, fyrir þá sem það kjósa, verði tæmd á
tveggja til fjögurra vikna fresti, eftir árstíð.
Þriðja tunnan verði fyrir óflokkað sorp, tæmd á fjögurra vikna fresti. Fyrir annan úrgang, eins og timbur, járn, garðaúrgang
o.þ.h. verði grenndargámar á svipuðum stöðum og verið hefur. Nefndin leggur einnig til að sveitarstjóri geri tillögu að
útboðsgögnum í samræmi við ofangreind atriði.