Tæplega 600 hundar og allt að 5000 kettir á Akureyri

Skráðir hundar á Akureyri nú er 575 talsins og hefur fjölgað um 90 á rúmu ári, en í febrúar í fyrra voru 485 hundar skráðir í bæjarfélaginu.  Bergur Þorri Benjamínsson sem annast skráningu hunda hjá Akureyrarbæ segir að á árunum 2088-2010 hafi orðið mikil fjölgun hunda í bænum og hvert metið á fætur öðru slegið.  „Það hefur aðeins hægt á þessari þróun en alls ekki mikið," segir hann.  

Fyrir tæpum tveimur áratugum, á árinu 1993, voru innan við 200 hundar skráðir á Akureyri.  Eftir aldamótin 2000 hefur hundahald aukist jafnt og þétt og er nú sem fyrr segir tæplega 600 hundar haldnir í bænum. Hvað varðar kattaeign Akureyringa segir Bergur Þorri að samkvæmt þeim upplýsingum sem fengist hafi hjá dýralæknum megi búast við að á bilinu 4-5 þúsund kettir séu í bæjarfélaginu. Ný samþykkt um kattahald var samþykkt í bæjarstjórn á dögunum. Samkvæmt henni ber eigendum katta að skrá þá, örmerkja og tryggja. Þá munu kattaeigendur framvegis þurf að borga skráningargjald að upphæð 10 þúsund krónur og 6 þúsund krónur í leyfisgjald fyrir hvern kött. Hver einstaklingur má samkvæmt nýju samþykktinni eiga að hámarki þrjá ketti.

Nýjast