Sýslumaður Íslands verður á Húsavík

Húsavík.
Húsavík.

Jón Gunn­ars­son, dóms­málaráðherra hef­ur ákveðið að sýslumaður Íslands verði staðsett­ur á Húsa­vík eft­ir sam­ein­ingu allra sýslu­mann­sembætta lands­ins und­ir eina stjórn. Bygg­ir ráðherra ákvörðun sína um staðsetn­ingu sýslu­manns ekki síst á grein­ingu Byggðastofn­un­ar. Það er Mbl.is sem greinir frá þessu.

Í sum­ar kynnti dóms­málaráðherra drög að frum­varpi um sam­ein­ingu sýslu­mann­sembætt­anna níu und­ir eina stjórn. Var því strax lýst yfir að sýslumaður Íslands yrði staðsett­ur á lands­byggðinni. Byggðastofn­un var jafnframt falið að leggja mat á staðina og svæðin. Ráðherra hef­ur nú sent er­indi á þing­flokka stjórn­ar­flokk­anna um niður­stöðu sína. Hann staðfesti við Morg­un­blaðið að staður­inn væri Húsa­vík en nánar er fjallað um málið í prentútgáfu Morgunblaðsins í dag.


Athugasemdir

Nýjast