Sýningin UR BJÖRK í Hrafnagilsskóla

Hrafnagil þar sem sýningin fer fram.
Hrafnagil þar sem sýningin fer fram.

Sænska farandsýningin UR BJÖRK, eða úr birki, sem opnaði á sunnudag í Hrafnagilsskóla mun standa yfir til 13. ágúst.

Að sýningunni standa 22 handverksmenn- og konur sem skiptu á milli sín heilu birkitré og fengu það hlutverk að nýta allt efnið með frjálsum huga og höndum. Það tók hópinn 6 mánuði að vinna 400 muni og það skal tekið fram að allt var nýtt af þessu tiltekna tré sem var 30 cm í þvermál og 25 m hátt.  

Sænski heimilisiðnaðarráðunauturinn Knut Östgård er einn af aðstandendum sýningarinnar en Knut er sérstakur gestur á Handverkshátíðinni í ár.
Sýningin er fengin hingað í tengslum við Handverkshátíðina og verður opin frá 30. júlí til 13. ágúst kl. 12-18.

UR BJÖRK er virkilega falleg og stórbrotin sýning sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.

Nýjast