Sýndu samstöðu gegn kynþáttamisrétti

Starfsfólk Jafnréttisstofu stóð fyrir samstöðugjörningi gegn kynþáttamisrétti í dag. Mynd: Hjalti Þó…
Starfsfólk Jafnréttisstofu stóð fyrir samstöðugjörningi gegn kynþáttamisrétti í dag. Mynd: Hjalti Þór Hreinsson

Í dag, 21. mars er alþjóðadagur gegn kynþáttamisrétti. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna valdi þessa dagsetningu til að minnast 69 mótmælenda sem myrtir voru 21. mars árið 1960 er þeir tóku þátt í mótmælum gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku.

Samtökin sem halda utan um Evrópuvikuna heita United Against Racism og á heimasíðu þeirra er hægt að finna allar frekari upplýsingar um 21. mars sem og Evrópuvikuna. Þar er einnig að finna upplýsingar um hvernig dagskráin fer fram í öðrum löndum Evrópu á hverju ári.  Dagana í kringum 21. mars hafa þúsundir manna komið saman eða staðið að ýmsum viðburðum til að kveða niður kynþáttafordóma og misrétti í álfunni.

Starfsfólk Jafnréttisstofu sem er með aðsetur í Borgum á Akureyri tók þátt í þessu verkefni með því að fara út í dag ásamt fleira fólki sem starfar í byggingunni kl 11. Þar myndaði fólkið hring um bílastæðið, hönd í hönd til að sýna á táknrænan hátt samstöðu gegn kynþáttamisrétti.   

Nýjast