Sýnataka hefst hjá Læknastofum Akureyrar

Sýnatökur verða virka daga frá kl. 9-13 og fara fram við Glerártorg.
Sýnatökur verða virka daga frá kl. 9-13 og fara fram við Glerártorg.

Sýnatökur vegna Covid-19 veirunnar hefjast hjá Læknastofum Akureyrar næstkomandi mánudag, þann 6. apríl í samvinnu við Íslenska erfðagreiningu. Ingibjörg Isakesen, framkvæmdastjóri Læknastofu Akureyrar, segir í samtali við Vikudag að í þessu fordæmalausa ástandi sé öllum aðgerðum frestað og því vilji Læknastofurnar leggja sitt af mörkum til samfélagsins.

Þar séu tvær skurðstofur sem alla jafnan eru fullnýttar auk þess sem yfir 30 sérfræðingar starfa á stofunum.

„Við viljum hjálpa til þar sem við getum. Þegar við sáum að við gátum nýtt starfsfólkið okkar í verkefnið var þetta ekki spurning því í svona ástandi er mikilvægt að allir taki höndum saman. Sýnatökurnar eru fyrir alla, einkennalausa sem og einkennalitla,“ segir Ingibjörg. Sýnatökurnar eru öllum að kostnaðarlausu og hægt er að panta tíma rafrænt með því að smella hér. Sýnatökur verða virka daga frá kl. 9-16 og fara fram við Glerártorg, að norðanverðu (bak við Bakaríð við brúna). Keyrt er upp rampinn, hjúkrunarfræðingur kemur út og tekur sýni og að sýnatöku lokinni er bakkað niður aftur.

Ingibjörg Isaksen

 

Læknastofur Akureyrar vilja sérstaklega þakka Eik fasteignafélagi fyrir hjálpina, „en þeir voru svo liðlegir að útvega aðstöðu sem smellpassaði fyrir verkefnið. Svo má ekki gleyma starfsfólki Læknastofa Akureyrar, því án þeirra væri þetta ekki hægt,“ segir Ingibjörg Isaksen.

Íslensk erfðagreining útvegar pinnana ásamt tilheyrandi tölvubúnaði og Embætti landlæknis útvegar hlífðarbúnað. Ekki hefur verið ákveðið hversu lengi Læknastofurnar muni bjóða upp á í sýnatöku.

 


Athugasemdir

Nýjast