Sylvía Rán og Arna Sif á EM í knattspyrnu

Þær Sylvía Rán Sigurðadóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir, knattspyrnukonur frá Þór/KA, standa í ströngu með U19 kvennalandsliði Íslands í knattspyrnu, sem leikur þessa dagana í úrslitakeppni Evrópmeistaramótsins U19 ára landsliða kvenna sem haldin er í Hvíta- Rússlandi.

Þær stöllur voru báðar í byrjunarliði íslenska liðsins í fyrsta leiknum á móti Noregi í gær sem lauk með markalausu jafntefli. Næstu mótherjar Íslands eru Svíar en sá leikur fer fram á fimmtudaginn.

Nýjast