Svona er þetta stundum í sveitinni

Októberlömbin fengu nöfnin Sara og Sólveig.  Hér eru þeir Alexander Örn Matthíasson með Söru og Dami…
Októberlömbin fengu nöfnin Sara og Sólveig. Hér eru þeir Alexander Örn Matthíasson með Söru og Damian Jakub Kondracki með Sólveigu. Mynd á bbl.is

Ærin Dúdda á Möðruvöllum 3 í Hörgárdal bar nýlega tveimur fallegum lömbum. Birgitta Lúðvíksdóttir sauðfjárbóndi segir í spjalli við Bændablaðið að hún hafi alls ekki átt von á sauðburði í október, „en svona getur þetta stundum verið í sveitinni.“

„Þegar við vorum að fara yfir ærnar nýlega þá átti þessi ær að fá lit fyrir sláturfé. Hún var geld í vor og átti þess vegna ekki að fá líf. Ég tók undir hana og fann að það var komið mikið júgur. Ég hélt samt að hún mundi ekki bera fyrr en eftir viku til hálfan mánuð. Þegar við fórum í fjárhúsið daginn eftir þá var hún að bera. Það var bara haus sem kom og hann var orðinn bólginn og kaldur, en lambið á lífi. Ég komst inn með hálsinum og náði öðrum fætinum og tók það þannig út,“ segir Birgitta.

Hún segir að smá tíma hafi tekið að koma lambinu af stað, en það tekist en hitt lambið þurfti að ná í, því hausinn lá niður með. Það tókst vel og heilsast bæði ær og lömbum, sem bæði eru gimbrar vel.

Smelltu gif


Athugasemdir

Nýjast