Sveinbjörn Pétursson nýliði í landsliðinu

Sveinbjörn Pétursson, markvörður Akureyrar, hefur verið valinn í A-landslið karla í handbolta fyrir World Cup 2010 sem fram fer í Svíþjóð, dagana 7.-8. desember næstkomandi. Hópurinn var tilkynntur í dag og eru einnig þeir Bjarni Fritzson og Oddur Gretarsson frá Akureyri í liðinu. Sveinbjörn er nýliði í hópnum ásamt Atla Ævari Ingólfssyni frá HK. Auk Íslands leika Danmörk, Svíþjóð og Noregur á mótinu.

Þar sem ekki er um að ræða alþjóðlega leikviku eiga ekki allir leikmenn heimangengt. Björgvin Páll Gústavsson, Hreiðar Levý Guðmundsson og Þórir Ólafsson eiga allir leiki með sínum félagsliðum, Ólafur Stefánsson og Vignir Svavarsson fá frí af persónulegum ástæðum og Guðjón Valur Sigurðsson er að stíga uppúr meiðslum.

Ísland leikur þriðjudaginn 7.desember við Svíþjóð kl.19.30 að íslenskum tíma og mætir svo annað hvort Noregi eða Danmörku daginn eftir kl.17.30.

Hópurinn er eftirfarandi:

Markmenn:

Birkir Ívar Guðmundsson - 138 landsleikir - Haukar

Sveinbjörn Pétursson - Nýliði - Akureyri

Aðrir leikmenn:

Alexander Petersson - 107 landsleikir - Fuchse Berlin

Arnór Atlason - 97 landsleikir - AG Köbenhavn

Arnór Þór Gunnarsson - 8 landsleikir - TV Bittenfeld

Aron Pálmarsson - 25 landsleikir - THW Kiel

Atli Ævar Ingólfsson - Nýliði - HK

Ásgeir Örn Hallgrímsson - 132 landsleikir - Hannover-Burgdorf

Bjarni Fritzson - 39 landsleikir - Akureyri

Ingimundur Ingimundarson - 79 landsleikir - AaB

Oddur Gretarsson - 7 landsleikir - Akureyri

Róbert Gunnarsson - 172 landsleikir - Rhein Neckar Löwen

Sigurbergur Sveinsson - 27 landsleikir - Rheinland

Snorri Steinn Guðjónsson - 166 landsleikir - AG Köbenhavn

Sturla Ásgeirsson - 53 landsleikir - Valur

Sverre Jakobsson - 94 landsleikir - Grosswallstadt 

Nýjast