Surtsey-Mávaból í Hofi

Þórunn Bára Björnsdóttir.
Þórunn Bára Björnsdóttir.

Myndlistarkonan Þórunn Bára Björnsdóttir opnar sýninguna Surtsey-Mávaból í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, laugardaginn 11. janúar. Verkunum, sem sýnd verða í Hofi, er ætlað að lyfta upp tilvist smárra en mikilvægra plantna úr vistkerfinu svo sem fléttum og mosum.

„En einnig þeim íslensku plöntum sem hafa náð að festa rætur á hrjóstugu landi og við þekkjum og okkur þykir vænt um. Með því að gefa gróðri jarðar gaum verður okkur ljós sú fegurð og viska sem í náttúrunni býr sem er mannbætandi. Við höfum skyldur við náttúruna sem einstaklingar og samfélag,“ segir í tilkynningu.

Þórunn Bára er fædd árið 1950 og hefur verið virk í íslenskri myndlist síðastliðinn áratug. Hún lauk listnámi frá listaháskólanum í Edinborg og Wesleyjan háskóla í Bandaríkjunum. Hún hefur haldið sýningar árlega, ýmist á Íslandi eða erlendis.


Athugasemdir

Nýjast