Stytting hringvegarins með Svínvetningaleið mikilvæg

Sveitarstjórn Svalbarðsstrandarhrepps tók fyrir erindi á síðasta fundi sínum, þar sem óskað var tillögu sveitarstjórnar að 2-3 forgangsverkefnum í samgöngumálum á starfssvæði Eyþings. Sveitarstjórn bendir á í svari sínu á mikilvægi styttingar hringvegarins með Svínvetningaleið.  

Einnig leggur sveitarstjórn til að markvisst verði unnið að því að útrýma einbreiðum brúm á þjóðvegum á starfssvæðinu og að Dettifossleið vestri verði kláruð niður að Ásbyrgi.

Nýjast