Afhendingin fór fram við Háskólann á Akureyri og veitti Stefán B. Sigurðsson, rektor háskólans, styrkinn í nafni Hugvits að viðstöddum deildarforseta viðskipta- og raunvísindadeildar og öðrum stjórnendum Háskólans á Akureyri. Styrkur sem þessi er afar þýðingarmikill fyrir unga stúdenta og Ketill Gauti er þakklátur og segir styrkinn endurspegla vel að það borgi sig að leggja sig 100% fram í náminu. „Þetta er mikil hvatning fyrir mig til að halda áfram að stunda námið af kappi en það eru nokkrar greinar innan líftækninnar sem heilla mig eins og erfðafræðin og iðnaðarlíftækni, svo verður maður bara að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér" segir Ketill Gauti.
Árið 2006 gerðu Hugvit hf. og Háskólinn á Akureyri með sér þriggja ára samstarfssamning sem felur í sér að Hugvit mun á samningstímanum veita árlega veglega námsstyrki til tveggja námsmanna við skólann sem þykja hafa sýnt framúrskarandi árangur í námi. Úthlutunin 2010 er í fjórða skipti sem Hugvitsstyrkurinn er veittur en síðastliðin ár hafa Ívar Örn Pétursson , Jón Helgi Sveinbjörnsson, Ástríður Ólafsdóttir, Eyrún Elva Marinósdóttir , Gunnar Harðarson og Ingólfur Sigfússon fengið úthlutað Hugvitsstyrk til náms við Háskólann á Akureyri
GoPro er öflugt íslenskt upplýsingakerfi fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja ná árangri í rafrænni stjórnun skjala, sjálfvirkum ferlum og málavinnslu. GoPro kerfið er þróað af Hugviti en það byggir á tækni hvortveggja frá Microsoft og IBM. Þróun GoPro byggir á nánu og áralöngu samstarfi við viðskipavini hér á landi og erlendis. Áætlaður fjöldi notenda er um eitt hundrað þúsund og fer ört fjölgandi.
Hugvit hf. hefur þróað GoPro hugbúnaðinn frá árinu 1993. Um 500 fyrirtæki og stofnanir um allan heim nota GoPro til að tryggja aðgengi að nauðsynlegum upplýsingum. Þar á meðal eru íslensku ráðuneytin og utanríkisþjónusta Íslands, lögregla og sýslumenn, Icelandair, Samskip, Landsbankinn, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Metropolitan Police Service, Oxford háskóli, Háskólinn á Akureyri, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík og fjöldi sveitarfélaga hér á landi og erlendis. Fyrirtækið er með starfsstöðvar í Reykjavík, Akureyri, Danmörku, Þýskalandi, Englandi, Eistlandi og í Búlgaríu.