Styrktu Rauða krossinn með flugvélasölu

Frá vinstri:  Sigurjón Þorvaldsson, Sigrún Stella Valþórsdóttir, Tinna Malín Bjarkadóttir og Sigrún …
Frá vinstri: Sigurjón Þorvaldsson, Sigrún Stella Valþórsdóttir, Tinna Malín Bjarkadóttir og Sigrún Lillý Arnórssóttir.

Þessir glæsilegu krakkar komu færandi hendi í Rauðakross búðina á Húsavík í vikunni. Börnin vildu láta gott af sér leiða á þessum undarlegu tímum og datt snjallræði í hug. Þau föndruðu kynstrin öll af pappírs-skutlum og komu sér svo fyrir við andyri Krambúðarinnar á Húsavík tvö eftirmiðdegi og seldu afurðirnar. Óhætt er að fullyrða að vel hafi gengið enda söfnuðu krakkarnir 36 þúsund krónum sem þau afhentu fulltrúum Rauða krossins sem voru gríðarlega þakklátir.

 


Athugasemdir

Nýjast