Styrktarganga Göngum saman um allt land

Í dag, sunnudaginn 4. september, verður árleg styrktarganga Göngum saman. Í ár verður gengið á ellefu  stöðum á landinu. Fullorðnir þátttakendur eru beðnir um að greiða kr. 3.000 og renna göngugjöldin óskipt í styrktarsjóð félagsins. Öll vinna við undirbúning og framkvæmd er unnin af sjálfboðaliðum og margir leggja hönd á plóg um land allt.  

Félagið hefur staðið fyrir slíkum fjáröflunargöngum frá árinu 2007 og frá árinu 2008 hefur verið gengið á Akureyri en þar er jafnframt starfandi gönguhópur sem gengur vikulega allan ársins hring. Í ár verður gengið frá hátíðarsvæðinu í Kjarnaskógi kl. 11.00, ofan við aðal leiksvæðið, og verða þrjár vegalengdir í boði; 2.2 km, 4 km og 6 km.

Nýjast