Strætó mun ganga á 20 mínútna fresti á annatíma í nýju leiðarkerfi

Nýtt leiðarkerfi tekur gildi í sumar.
Nýtt leiðarkerfi tekur gildi í sumar.

Akureyrarbær hefur kynnt nýtt leiðanet Strætisvagna Akureyrar að loknu samráði og endurskoðun og er stefnt að því að hefja akstur samkvæmt nýju leiðaneti í sumar. Í tilkynningu frá bænum segir að helstu leiðarljós og markmið séu óbreytt frá upphaflegum tillögum; að bæta þjónustuna, fjölga farþegum með aukinni tíðni, beinni leiðum, styttri ferðatíma og stuðla að betri tengingu milli skóla og frístundastarfs.

Lagt er upp með að leiðanetið samanstandi af tveimur megin leiðum og að strætó komi á 20 mínútna fresti á annatíma sem er mikil framför frá núverandi leiðaneti sem byggir á 60 mínútna tíðni.

Frístundaakstur fyrir 1.-4. bekk

Ein af stóru breytingunum sem samráðið leiddi af sér er innleiðing á sérstökum frístundaakstri fyrir nemendur í 1.-4. bekk samhliða nýja leiðanetinu, enda sneru margar ábendingar að þeim hópi. Jafnvel þótt nýja leiðanetið hafi í för með sér mun betri tengingar en áður milli skóla og frístundastarfs er talið að koma þurfi betur til móts við þarfir yngstu grunnskólabarna sem sækja íþróttir og aðrar tómstundir beint úr skóla. Auk þess hafa verið gerðar nokkrar mikilvægar breytingar á leiðanetinu sjálfu í kjölfar samráðsins. Má þar nefna breytingar á leið 2, annars vegar til að þjónusta betur ákveðin svæði Síðuhverfis og hins vegar til að bæta tengingu við Hagahverfi. Þá er leið 1 við Skautahöllina framlengd á annatíma og á kvöldin sem hefur í för með sér betri þjónustu við innbæinn, Oddeyrina og Holtahverfi líkt og kallað var eftir.

Aðrar úrbætur og mótvægisaðgerðir fela til dæmis í sér aukna áherslu á snjómokstur á stígum sem tengjast stoppistöðvum. Einnig verður lagt mat á umferðaröryggi, til dæmis við Hlíðarbraut, lýsing bætt á nokkrum stöðum og lögð áhersla á að fjölga smám saman góðum biðskýlum við stoppistöðvar.


Athugasemdir

Nýjast