Stórutjarnaskóli tekur þátt á evrópsku samstarfsverkefni

Allur kennarahópurinn saman í Stórutjarnaskóla  Mynd Stórutjarnarskóli
Allur kennarahópurinn saman í Stórutjarnaskóla Mynd Stórutjarnarskóli

„Það hefur verið mjög mikilvægt fyrir okkur, bæði nemendur og kennara að taka þátt í þessu verkefni og við munum lengi búa að því,“ segja þær Birna Kristín Friðriksdóttir og Nanna Þórhallsdóttir kennarar í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit. Skólinn hefur undanfarin þrjú ár tekið þátt í evrópsku samstarfsverkefni fjögurra skóla frá fjórum löndum, Enjoy Math and Sciences nefnist það. Aðrir þátttakendur eru skóli í Arles í Frakklandi, Pärnu í Eistlandi og Mílanó á Ítalíu. Verkefnið er styrkt af Erasmus+menntasjóði ESB.

 

Birna og Nanna segja stærstu verkefnin felast í heimsóknum milli skóla. Fyrsta veturinn þegar kórónuveiran var í gangi var unnið á netinu. Þrír til fjórir kennarar frá hverjum skóla heimsækja samstarfsskólana, tvo skóla á hverjum vetri og var dvalið í viku í senn á hverjum stað við nám og kennslu. Þá fengu allir að kynnast nýja skólanum auk þess að fá þjálfun í nýjum kennsluaðferðum. Fjórða og síðasta heimsóknin var nú fyrir páska þegar Stórutjarnaskóli fékk heimsókn kennarar frá samstarfsskólunum. Fjórir íslenskir kennarar eru þátttakendur í verkefninu og 11 erlendir. Þá eru um 200 nemendur skólanna á aldrinum 7 til 11 ára virkir þátttakendur á hverju skólaári.

Þessa þrjá vetur hafa verið unnin sameiginleg verkefni á netinu og kennsluaðferðir þróaðar. Verkefnunum hefur verið skilað í sameiginlegar e-bækur og er nú á  þessari vorönn verið að ljúka við áttundu rafverkefnabókina. Einnig unnu nemendurnir að sameiginlegum spurningakeppnum, þrautaverkefnum og fleiru sem þau sendu á milli sín.

Meðal verkefna sem búið er að vinna að nefna þær kynningu á menningu hvers lands, það hefur verið búið til og unnið með stærðfræðiverkefni með myndum og upplýsingum frá löndunum, unnið hefur verið með plánetu þar sem hugað er að fólksfjölda, vatns- og fæðuöflun, hitastigi og híbýlamöguleikum. Einnig má nefna verkefni um tungumál, plöntur og dýr og allt er tengt inn í stærðfræði- og náttúrufræðikennslu.

Finna, miðla og þróa

„Megintilgangur þessa samstarfsverkefnis er að finna, miðla og þróa fjölbreyttar kennsluaðferðir og nýja nálgun í stærðfræði og náttúrufræði,“ segja þær. „Það hefur verið einstakt tækifæri fyrir okkur hér í dreifbýlinu að vera með, þátttaka okkar í verkefninu hefur aukið fjölbreytni við kennslu, víkkað sjóndeildarhringinn og þá höfum við kynnst og öðlast reynslu af alþjóðlegu samstarfi.“

Birna og Nanna segja það skipta máli fyrir Stórutjarnaskóla að vinna með skólum víðs vegar um Evrópu og skiptast á reynslu, þekkingu og góðum vinnubrögðum varðandi kennslu. „Þetta verkefni hefur líka bætt bæði félags- og faglega stöðu þátttakenda, aukið hæfni og eflt færni sem er mjög  mikilvægt. Það sem kannski skiptir mestu og við munum búa að til lengri tíma er að vinnan í þessu verkefni hefur gefið okkur svo mikið í því að þróa nýjungar í skólastarfi.“

Nemendur njóta góðs af

Þær segja að þátttakan hafi verið töluverð áskorun, en mjög lærdómsríkt og sérlega skemmtilegt. „Við störfum í litlum skóla í dreifbýli, það eru fáir nemendur og kennarar og mesta úrvalið af endurmenntunarnámskeiðum er í boði í Reykjavík. Það er því ekki endilega hlaupið að því að sækja þau, þannig að það er verulegur ávinningur fyrir okkur að fá þetta tækifæri og vera með. Við höfum lært mikið, nýja hluti sem nýtast okkur vel hér. Það má orða það svo að þetta hafi opnað fyrir okkur nýjan og ferskan glugga og okkar nemendur njóta svo sannarlega góðs af. Þetta er ekki síður þroskandi fyrir þau og hefur gefið þeim meiri möguleika og ný sjónarhorn,“ segja þær og nefna m.a. í því sambandi margvíslega hluti sem tengjast tækni og forritum.


Athugasemdir

Nýjast