Steinsteypir ehf. hefur gert samkomulag við Hvalasafnið á Húsavík um kaup á 255 fermetrum af lausum rýmum á jarðhæð safnsins.
Rýmin sem um ræðir voru áður frystirými árum saman en hafa nú staðið tóm í nokkurn tíma. Hvalasafnið mun áfram eiga rými á jarðhæð sem hýst hafa geymslur safnsins og nú er unnið að endurbótum á. Auk þess mun Hvalasafnið áfram eiga annað geymslurými á jarðhæð sem áður var leigt út.
Á heimasíðu Hvalasafnsins er sagt frá því að Steynsteypir hyggst gera rýmin upp og vanda til verksins og stendur til að hluti húsnæðisins verði notaður undir salernisaðstöðu fyrir ferðamenn. Önnur rými verða hönnuð fyrir ýmsa ferðaþjónustutengda starfsemi. Staðsetning rýmanna við hafnarstéttina er góð og með þessu kemst líf í umrædd rými sem staðið hafa tóm um nokkurt skeið.
Samhliða þessum viðskiptum mun Steinsteypir ehf taka að sér niðurrif á tveimur viðbyggingum (samtals um 160 fm) við hús Hvalasafnsins sem báðar eru eign safnsins. Þessar viðbyggingar tilheyrðu frystirýmastarfsemi og eru þær nú í mjög lélegu ásigkomulagi. Við þetta mun byggingaréttur Hvalasafnsins til norðurs stækka umtalsvert.