Steingrímur J. fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið hjá VG

Steingrímur J. Sigfússon fékk afgerandi kosningu í fyrsta sætið í forvali Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi en alls var kosið í átta sæti. Þuríður Backman  hafnaði í öðru sæti og Björn Valur Gíslason í því þriðja. Alls gaf 21 félagi kost á sér í forvalinu en var kjörsókn tæplega 63%. Einn kjörseðill var úrskurðaður ógildur. Vegna reglna um kynjajafnrétti á listum Vinstri grænna færist Dýrleif Skjóldal upp fyrir Hlyn Hallsson.  

Frambjóðendur raðast þannig:

1.      Steingrímur J. Sigfússon

2.      Þuríður Backman

3.      Björn Valur Gíslason

4.      Bjarkey Gunnarsdóttir

5.      Þorsteinn Bergsson

6.      Hlynur Hallsson

7.      Dýrleif Skjóldal Ingimarsdóttir
8.      Jóhanna Gísladóttir

Nýjast