SR er komið í lykilstöðu í baráttunni við SA um Íslandsmeistararitilinn í íshokkí karla eftir 3:2 sigur á heimavelli
í kvöld í framlengdum leik. Egill Þormóðsson var hetja SR er hann skoraði gullmark í framlengingunni. Björn Sigurðsson og Gauti
Þormóðsson voru einnig á meðal markaskorara heimamanna í leiknum en Björn Már Jakobsson og Steinar Grettisson skoruðu mörk SA.Vinna þarf þrjá leiki til þess að verða Íslandsmeistari og því getur SR klárað einvígið á fimmtudaginn kemur,
þegar liðin mætast í Skautahöllinni á Akureyri kl. 19:00.
Hollvinir heimsóttu lyflækningadeild í dag og afhentu starfsfólki blómvönd og samúðarkveðju vegna fráfalls Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur, fyrrum deildarstjóra lyflækningadeildar.
Fólk verður ekki hrumt af því að eldast. Fólk verður hrumt þegar samfélagið tekur frá því hlutverk, tengsl og tilgang. Saga öldrunarþjónustu á síðustu áratugum er að hluta saga um slíkt hlutverkatap.
Menningarhúsið Berg á Dalvík er vettvangur stórtónleika annað kvöld þegar stór og öflugur hópur listafólks úr heimabyggð sameinar krafta sína og heldur styrktartónleika fyrir Úlfar Baldvin, 6 ára ofurhetju og fjölskyldu hans, en Úlfar hefur nýlega verið greindur með krabbamein.
Allir vita hver skilgreining á óbeinum reykingum er og nú er ég kominn þangað, ég lendi í litlu mæli í því að stunda óbeinar reykingar. Já, takk ég er hættur að reykja.
Hopp Akureyri hefur spurst fyrir um það hvort áhugi sé fyrir hendi til að þjónusta þeirra nái í Hrafnagilshverfi.
Framkvæmdaráð Eyjafjarðarsveitar hefur tekið jákvætt í hugmyndir að aukinni fjölbreytni sem felst í fararskjótum Hopp milli Hrafnagilshverfis og Akureyrarbæjar og beinir erindinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Framkvæmdaráð leggur áherslu á að ef af þjónustunni verður þá sé rík áhersla lögð á að Hopp hjól séu eingöngu skilin eftir á afmörkuðum stöðum og fjarlægð fljótt þegar þau eru rafmagnslaus eða utan þjónustu.