Soroptimistar senda jólapakka til grænlenskra barna

Soroptimistasystur á Akureyri senda jólapakka til allra barna í Ittoqqortoormiit (Scoresbysund) á Grænlandi. Að frumkvæði Helenu Dejak hafa Soroptimistar á Akureyri nú í annað sinn gefið öllum börnum frá 0 til 15 ára í Ittoqqortoormiit, á austurströnd Grænlands jólapakka.  

Börnin voru 142 og fylltu pakkarnir sjö pappakassa sem þurfti að pakka í plast og líma vel fyrir til að gera þá vatnshelda. Flogið er með kassana til Grænlands og fara pakkarnir með hundasleðum á áfangastað með hlýjum jólakveðjum frá soroptimistasystrum á Akureyri.

Eitt aðalverkefni soroptimistasystra á Akureyri, til margra ára, er að færa eldri borgurum í bænum bækur og hljóðspólur frá bókasafninu aðra hverja viku allt árið um kring. Sú hefð hefur skapast að láta smákökur og jólakveðjur fylgja síðustu sendingu fyrir jól. Samhugur og gleði var ríkjandi, þar sem ylmandi smákökur í hundraðatali komu út úr ofnunum.

Nýjast