Söngleikjatónleikar í Hofi á sunnudag

Alexandra Chernyshova og Michael Jón Clarke verða með söngleikjatónleika í Hamraborg í Hofi á Akureyri sunnudaginn 30. janúar kl. 16.00.  Þetta er í annað sinn sem þau leiða saman hesta sína, en 2009 fluttu  þau óperuna "Síminn" eftir Menotti á Akureyri,  Varmahlíð og í Reykjavík.  Flutningur þeirra fékk mjög góða dóma.  

Aftur er það  rómantíkin sem ræður för í flutningi þeirra á sönglögum og dúettum úr rómantískum söngleikjum frá Oklahoma til Óperudraugsins. Michael Jón hefur starfað um margra áratuga skeið á Akureyri í öllu mögulegu tónlistartengdu, en er e.t.v. síst þekktur fyrir flutning á söngleikjatónlist, þó hefur hann útsett og stjórnað fjórum söngleikjum.

Alexandra er orkubolti sönglífsins í Skagafirði og hefur afrekað hvert stórvirkið á fætur öðru síðan hún fluttist þangað  fyrir nokkrum árum. Hún hefur stofnað söngskóla og sett upp m.a. þrjár óperur. Þau fá til liðs við sig einn orkuboltann til viðbótar, Risto Laur, sem skaut upp kollinum nýlega á Akureyri beint frá Eistlandi. Hann er ekki bara píanóleikari, heldur heil hljómsveit.

Nýjast