Sögutengd hljóðfærasýning opnuð á Glerártorgi

Sögutengd hljóðfærasýning var opnuð á Glerártorgi sl. föstudag, í rými sem Penninn var áður í. Að sögn Friðjóns Jóhannssonar, kom hópur manna saman sl. haust og fór að kanna möguleika á að setja á stofn sýningu eða safn og þá voru menn reyndar frekar að horfa til þess að stofna hljóðfærasafn. Ekki þótti hlaupið að því að koma upp safni og málin þróuðust á þann veg að farið í að leita að húsnæði fyrir tímabundna sýningu.  

Í þeirri vinnu hafa margir möguleikar komið upp en að lokum stóð þetta rými sem Penninn var í mönnum til boða og í kjölfarið var ráðist í að setja upp þessa sýningu. Þar er að finna mikið úrval hljóðfæra af öllum gerðum og á ýmsum aldri, útvörp, gamla grammófóna og margt fleira. "Hljóðfærin sjálf eru ekki, allt, heldur er það sagan á bak við hljóðfærin sem skiptir máli. Verðmætin eru miklu frekar fólgin í sögunni og hljóðfærin eru frekar til að minna okkur á sögurnar," sagði Friðjón.

Fjölmargir tónlistarmenn og eigendur hljóðfæra og annarra muna koma að sýningunni og má þar nefna Gunnar Tryggvason, Friðjón Jóhannsson, Hermann Arason, Þorsteinn Kjartansson, Helenu Eyjólfsdóttir, Rafn Sveinsson, Reynir Schöith, Brynleif Hallsson, Björn Þórarinsson og fleiri. Stefnt er að því að sýningin standi fram eftir sumri, eða svo lengi sem þetta rými stendur til boða. Hljóðfæraleikarnir stefna einnig að því að grípa í hljóðfærin og spila fyrir gesti og gangandi. Aðgangur að sýningunni er ókeypis og allir velkomnir.

Nýjast