Axel Grettisson oddviti og Snorri Finnlaugsson sem verður áfram sveitarstjóri í Hörgársveit
Fyrsti fundur nýkjörinnar sveitarstjórnar Hörgársveitar var haldinn í dag, 1.júní og var Axel Grettisson kjörinn oddviti og Ásrún Árnadóttir varaoddviti. Snorri Finnlaugsson var ráðinn áfram sveitarstjóri Hörgársveitar til loka kjörtímabilsins.
Þrjú verkefni á Akureyri fengu úthlutað styrk úr Sprotasjóði leik-grunn- og framhaldsskóla og eitt verkefni á Húsavík. Samtals var úthlutað rúmlega 64 milljónum til 20 skólaþróunarverkefna fyrir skólaárið 2026–2027.
Við erum afskaplega dugleg að flokka samfélagsrými niður: þetta er fyrir börn, hitt fyrir ungmenni og svo enn annað fyrir eldra fólk. En samfélagið sjálft virkar ekki svona – og húsin okkar ættu ekki að gera það heldur.
Glasið er hálffullt!Norðurþing er auðugt sveitarfélag. Tækifæri hafa farið og önnur komið í staðinn. Því miður erum við á þeim stað eins og er að stórt verkefni sem átti að hjálpa samfélaginu að vaxa og dafna virðist ekki ætla ganga upp þrátt fyrir a...
Aida sol, fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins leggur að bryggju á Akureyri á sunnudag, 19. apríl og markar þar með upphafið að sumrinu fyrir bæjarbúa. Sannkallaður vorboði í það minnsta sem á vel um þessar mundir þegar ögn hefur hlýnað í veðri frá því sem verið hefur um skeið. Aida sol er eina skipið sem kemur til hafnar í apríl, en fjör færist í leikinn þegar líður á maí mánuði. Á tímabilinu frá 10. til 31. maí eru væntanleg til hafna Hafnasamlags Norðurlands alls 13 skemmtiferðaskip.
Áfengisdrykkja meðal ungmenna var almennt minni í fyrra en var árið á undan sem og hlutfall þeirra sem orðið höfðu drukkin um ævina. Hlutfall þeirra sem orðið hafa fyrir ofbeldi er á niðurleið og einnig þeirra sem takið hafa þátt í slagsmálum. Þá er hlutfall þeirra ungmenn sem skoða klám á mikilli niðurleið.
Drift EA og Golfklúbbur Akureyrar hafa hafið samstarf sem byggir á þeirri einföldu hugmynd að bestu samtölin og hugmyndirnar verða oft til utan fundarherbergisins. Með samstarfinu verður fyrirtækjum og teymum sem sækja Drift EA heim boðið að upplifa norðlenska golfmenningu sem hluta af heildstæðri upplifun þar sem vinna, tengslamyndun og afþreying fara saman.