29. október, 2007 - 12:29
Fréttir
Snjóframleiðsla er hafin í Hlíðarfjalli á Akureyri og er snjóframleiðslukerfið nú látið ganga allan sólarhringinn. Byggja þarf skíðabrekkurnar upp frá grunni þar sem lítið sem ekkert hefur snjóað á Akureyri í haust og því mun taka nokkra daga að gera þær klárar. Samkvæmt veðurspá verður kalt í veðri út þessa viku og ef það helst þannig má búast við að hægt verði að bregða sér á skíði eftir um það bil 10 daga.