Snjóflóðið i Dalsmynni Uppfært kl 19:00

Á vettvangi seinnipartinn i dag  Myndir Landsbjörg
Á vettvangi seinnipartinn i dag Myndir Landsbjörg

Einn aðili varð fyrir flóðinu og er hann talsvert slasaður en ekki talinn vera í lífshættu. Mikil snjóflóðahætta var á vettvangi, ásamt því að veðurskilyrði voru erfið, og var því ákveðið að þyrlan færi ekki beint á vettvang meðan unnið væri að því að tryggja öryggi björgunaraðila. Ekki var unnt að komast á vettvang á sleðum eða öðrum tækjum og þurftu björgunaraðilar að fara fótgangandi og klofa djúpan snjó á leið sinni á vettvang.

Konan sem slasaðist reyndist vera með talsverða áverka og m.a. fótbrotin. Viðbragðsaðilar hlúðu að henni á vettvangi og bjuggu um hana til flutnings í s.k. skel. Konan var borin í skelinni niður fjallið og var komin í sjúkrabíl kl. 18:24. Hún var þá orðin nokkuð köld og var flutt til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Frekari upplýsingar um áverka hennar liggja ekki fyrir þegar þetta er skráð.
 
 
Alls komu um 130 viðbragðsaðilar að aðgerðinni og má geta þess að skráðir voru í aðgerðina 20 bílar, 24 vélsleðar, 1 þyrla, 3 leitarhundar, 1 snjóbíll, 1 dróni og 2 sjúkrabílar.
 Þetta segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eysta

Athugasemdir

Nýjast