Smit í Oddeyrarskóla á Akureyri

Oddeyrarskóli.
Oddeyrarskóli.
Í gær greindist nemandi á miðstigi Oddeyrarskóla á Akureyri með staðfest smit af Covid-19. Vegna þessa hefur skólanum verið lokað og allt starfsfólk og nemendur sæta nú úrvinnslusóttkví á meðan smitrakning fer fram. Þetta kemur fram á Facebooksíðu lögreglunnar á Akureyri.
 
Starfsfólk, nemendur og foreldrar þeirra eru beðnir um að fylgjast vel með því hvort fram komi einkenni sjúkdómsins og er bent á að hafa samband við heilsugæsluna ef grunur vaknar um smit. Enn er óupplýst hver uppruni smitsins er en smitrakning er hafin.
 
Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að hann verður lokaður mánudaginn 19. október vegna þessa og síðan taka við haustfrí út næstu viku. Í Oddeyrarskóla eru 195 nemendur og 45 starfsmenn.
 

Athugasemdir

Nýjast