Slösuð skíðakona í Karlsárdal

Mynd af vettvangi.
Mynd af vettvangi.

Björgunarsveitin á Dalvík var kölluð út í dag um klukkan tvö eftir að tilkynning barst Neyðarlínu um slasaða skíðakonu innarlega í Karlsárdal, norðan við Dalvík. Flytja þurfti konuna um 4 kílómetra leið að bílastæði þar sem sjúkrabíll beið.

Björgunarsveitarfólk fór á vélsleðum á vettvang og hlúði að konunni sem var slösuð á fæti eftir að hún hafði dottið á skíðum. Segir í tilkynningu að konan hafi verið flutt á vélsleða að sjúkrabíl sem lagði af stað á þriðja tímanum með konun til skoðunar á sjúkrastofnun.

 

 


Athugasemdir

Nýjast